top of page
helga.jpg

HELGA SJÖFN JÓHANNESDÓTTIR

Sjúkraþjálfun B.Sc.

Menntun:

Sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands árið 2009.

BS lokaritgerð: Áhrif eksentrískrar styrktaræfingar á styrk aðfærsluvöða mjaðma og hreyfiferil fráfærslu í mjöðm hjá knattspyrnumönnum í efstu deildum karla á Íslandi.


Starfsferill:

Starfaði frá árinu 2013 – 2020 á lungnasviði Reykjalundar. Þar sinnti hún bæði sértækri einstaklings og hópaþjálfun fyrir lungnasjúklinga auk þess að vera með hópaþjálfun þvert á öll svið Reykjalundar og almenna sjúkraþjálfun á göngudeild sjúkraþjálfunardeildar. Starfaði tímabundið sem hreyfistjóri á Reykjalundi.

Frá árinu 2009 – 2013 starfaði Helga Sjöfn á  Landspítalanum í Fossvogi. Þar starfaði hún mest á lungna – og gjörgæsludeild en ásamt því kenndi hún hópþjálfun  fyrir mænuskaddaða og vatnsþjálfun á Grensás.

Hefur frá árinu 2018 kennt hóptíma í Hreyfistjórn en þar er kennt Fysio Flow, FysioFIT og Fysio Flex.

Komið að endurhæfingu barna og unglinga úr hinum ýmsu íþróttagreinum ásamt því að starfa sem sjúkraþjálfari í æfingaferðum meistaraflokka kvenna í knattspyrnu.


Námskeið og endurmenntun:

Hefur sótt fjölda námskeiða tengd sjúkraþjálfun m.a. í meðferð og greiningu á axlarvandamálum, í bandvefsmeðferð, námskeið í sérhæfðri æfingameðferð fyrir konur eftir meðgöngu, nálastungunámskeið og ýmis verkjanámskeið.

Önnur námskeið og réttindi: Fysio Flow kennsluréttindi og  Foam Flex kennsluréttindi


Áhugasvið:

Sjúkraþjálfun á og eftir meðgöngu, lungna- og hjartaendurhæfing, íþróttameiðsli og forvarnir, hreyfigreining og æfingameðferð vegna verkja, hópþjálfun, almenn heilsuefling og heimasjúkraþjálfun.

Helga Sjöfn: Our Team
  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

©2020 by Sjúkraþjálfun Akraness. Proudly created with Wix.com

bottom of page